Fréttir

Glófi styđur árveknisátak

Glófi styđur árveknisátak Krabbameinsfélagsins međ bleikri línu

Krabbameinsfélag Íslands fékk ánćgjulegan liđsstyrk í árlegu árveknisátaki sínu vegna brjóstakrabbameins ţegar prjónaframleiđandinn Glófi ehf. hannađi sérstaka bleika vörulínu til styrktar átakinu. Hluti af ágóđanum af sölu hennar rennur beint til Krabbameinsfélagsins.

 „Viđ rekum tvćr prjónaverksmiđjur, eina á Hvolsvelli og ađra á Akureyri og  erum stolt af ţví ađ framleiđa íslenskar vörur úr íslensku hráefni“ segir Pamela J Svavarson, markađsstjóri Glófa sem framleiđir vörur sínar undir vörumerkinu  VARMA of Iceland.  

Starfsfólk Glófa er ađ mestum hluta konur, en ein af hverjum tíu konum greinist međ krabbamein einhvern tímann á ćvinni. „Ţetta er málefni sem snertir allar konur, og ţví var ákveđiđ innan fyrirtćkisins ađ skapa sérstaka línu í ár til stuđnings átaki Krabbameinsfélagsins gegn brjóstakrabbameini og renna 10% af söluhagnađi bleiku línunnar til Krabbameinsfélagsins. Međ ţessu viljum viđ leggja okkar af mörkum og styđja viđ bakiđ á ţví mikilvćga starfi sem unniđ er á vegum Krabbameinsfélagsins fyrir konur og fjölskyldur ţeirra um allt land,“ segir Pamela.

„Viđ kunnum vel ađ meta ţann hlýhug og stuđning sem Glófi sýnir okkur međ ţessum gjörđum og hann skiptir miklu máli fyrir okkur,“ segir Guđrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.  „Eins og Pamela minntist á ţá kynnast flestir Íslendingar starfsemi Krabbameinsfélagsins á einhvern hátt, annađ hvort persónulega eđa í gegnum vini og ćttingja. Ţar skipta ekki síst sköpum ţćr tugţúsundir kvenna sem mćta reglulega til okkar í legháls- eđa brjóstakrabbameinsleit. Átak Krabbameinsfélagsins er ţví átak okkar allra, eins og glöggt má sjá á hinum frábćru viđbrögđum sem viđ höfum fengiđ.“




Fara í fréttayfirlit
Til baka
Glófi | Hrisalundur 1b, IS - 600 Akureyri Iceland | Tel. + 354 464 7300 Fax + 354 464 7311 | glofi@glofi.is