Fréttir

Ný vefsíða í loftið

Undanfarið hafa starfsmenn Glófa ásamt veffyrirtækinu IGM unnið að uppsetningu að nýrri og bættri vefsíðu. Með henni vonumst við til að geta veitt skýrari og betri upplýsingar um vörur okkar og þjónustu. Er það stefna okkar á næstu mánuðum að bæta við upplýsingum og þjónustu möguleikum á síðunni eins og tækifæri gefst til.
Fyrst um sinn er það hlutverk vefsíðunnar að þjóna viðskiptavinum fyrirtækisins og til upplýsinga fyrir þá sem ekki þekkja til okkar. Ekki er meiningin að þetta sé vefverslun.

Það er von okkar að viðskiptavinir fyrirtækisins nýti sér síðuna til að fá sem bestar upplýsingar um vörurnar og sem hjálpartæki við pantanir. Pöntunar seðlar sem hægt er að útfylla og senda til okkar verða aðgengilegir á síðunni.

Til að lokafrágangur síðunnar verði sem bestur er mikilvægt að við fáum sem flestar ábendingar um það sem betur mætti fara og það sem vel er gert.

Einnig er það von okkar að þeir sem ekki þekkja nógu vel til okkar fái sem bestar upplýsingar og að það verði þeim hvatning til að stofna til viðskipta.

 




Fara í fréttayfirlit
Til baka
Glófi | Hrisalundur 1b, IS - 600 Akureyri Iceland | Tel. + 354 464 7300 Fax + 354 464 7311 | glofi@glofi.is