Fyrirtækið
Glófi ehf. er eigandi að vörumerkinu Varma of Iceland.
Fyrirtækið.
Glófi ehf. er í dag stærsti framleiðandi prjónavöru á Íslandi. Helstu framleiðsluvörur fyrirtækisins eru sokkar, húfur, hárbönd, treflar og sjöl, ásamt allskyns flíkum úr Íslenskri ull, einkum slám, peysum og kápum. Einnig býður Glófi vörur úr íslensku lambskinni. Aðal vörumerki fyrirtækisins er Varma of Iceland.
Þá hefur Glófi gert samning við Ístex í Mosfellsbæ um markaðssetningu og sölu allra teppa sem Ístex hefur framleitt undir vörumerkjunum Icewool, Álafoss og Alafoss Interior. Fyrirtækið er leiðandi á markaði með ýmsar vörur sínar bæði innanlands og erlendis.
Umsvif fyrirtækisins hafa vaxið mikið á undanförnum 3 árum og hefur veltan þrefaldast á þessum tíma.
Eigendur Glófa eru Logi A. Guðjónsson framkvæmdastjóri og Páll Kr. Pálsson stjórnar formaður og eiga þeir fyrirtækið til helminga.
Starfsemin.
Starfsemi fyrirtækisins er á þremur stöðum.
. Á Akureyri er framleiðsla á smávörum og mokkavörum.
. Á Hvolsvelli eru allar flíkur og stærri vörur framleiddar.
. Í Kópavogi er sölu og markaðsstarfsemin til húsa, ásamt innflutiningi minjagripa og almennu skrifstofuhaldi.
Fjöldi starfsmanna er 30, þar af 13 á Akureyri, 12 á Hvolsvelli og 5 í Kópavogi. Starfsmenn Glófa hafa áratuga reynslu í framleiðslu á prjónavörum.
Mikil aukning er í allri starfsemi fyrirtækisins, bæði eigin framleiðsu og framleiðslu fyrir aðra, einkum hönnuði og tískuverslanir. Stöðugt er unnið að því að endurskipuleggja og endurmóta vöruframboð fyrirtækisins og bæta inn í vörulínur þess ýmsum nýjungum.
Markmið Glófa er að ná umtalsverðum vexti í rekstrinum, auka hagkvæmni í framleiðslu, markaðssetningu og sölu og vinna að því í auknum mæli að koma vörum fyrirtækisins á markaði erlendis.
Viðskiptavinir.
Glófi selur afurðir sínar til neytenda í gegnum:
. Smásölukeðjur.
. Sérverslanir fyrir ullarvörur og minjagripi.
. Ýmsar sérverslanir
. Hönnuði
. Umboðsmenn erlendis. Helstu útflutningslönd eru Þýskaland, Noregur, Svíþjóð, Kanada, Danmörk og Færeyjar.
Seljendur á vörum fyrirtækisins eru á annað hundrað og má segja að stór hluti Íslendinga séu notendur á vörum fyrirtækisins.
Við höfum fundið mikinn meðbyr með aðgerðum okkar á markaðnum og stefnum að því að efla og bæta samstarfið við viðskiptavini okkar og neytendur á næstu misserum, þannig byggjum við upp öflugan grunn fyrir framleiðslu, markaðssetningu og sölu á íslenskum ullarvörum í framtíðinni innanlands sem erlendis.
Vöruþróun.
Eigendur Glófa hafa gætt þess að vera stöðugt í vöruþróun og um þessar mundir er m.a. unnnið að því að þróa nýjar tegundir af sokkum úr blöndu af; ull, meraklon, polyamid og lycra. Þessir sokkar hafa þá eiginleika að fólk svitnar ekki í þeim.
Mörg Íslensk fyrirtæki framleiða vörur úr erlendu bandi á láglaunasvæðum erlendis. Oft er reynt er að líkja eftir sérstöðu íslensku ullarvaranna. Þetta sýnir að íslenskar ullarvörur, bæði mynstur og áferð hafa ákveðna sérstöðu og hana ætlum við að reyna að þróa og nýta okkur með því að nota íslenska ull og vera trú uppruna okkar, enda gæði íslensku ullarinnar einstök.
